Bálstofa dýranna

Bálstofa dýranna

Dýraspítalinn í Garðabæ hefur gert samning við nýtt fyrirtæki um sérbrennslu gæludýra.

Bálstofa dýranna er sérhæft fyrirtæki sem hefur yfir að ráða hátæknivæddum brennsluofni fyrir dýr og því teljum við það þjóna öllum okkar óskum um þá virðingu sem við viljum sýna okkar bestu vinum á leið þeirra yfir regnbogabrúna.

Við afhendum síðan dýrin í fallegri öskju.

Jafnframt munum við brenna í almennri brennslu öll þau dýr er falla frá hjá okkur og ekki fara í sérbrennslu í staðinn fyrir urðun í Álfsnesi.

Ofninn er frá fyrirtækinu Matthewscremation í Bandaríkjunum, en þeir hafa verið leiðandi í framleiðslu brennsluofna fyrir menn og dýr í yfir 60 ár og hafa selt ofna til yfir 50 landa. Matthews er það fyrirtæki í heiminum sem hefur sett standardinn í framleiðslu brennsluofna hvað varðar öryggi og gæði.

Ofninn nýtir Metangas sem eldsneyti og er því mjög vistvænn.

Neyðarþjónusta
Tímapantanir
Ráðgjöf
Fróðleikur
Vefverslun